"Gryla", the mother of the Christmas elves. | |
Í gamla daga var Grýla álitin mjög hættuleg, því sagt var að hún tæki krakka og eldaði þá í stórum potti.
Börnin voru mjög hrædd við hana. Það var sagt að hún byggi uppi á fjöllum með Leppalúða manninum sínum og að þau ættu 13 syni sem eru jólasveinarnir. Sagt var að Grýla ætti líka dóttur sem væri eigandi jólakattarins.
Grýla hefur ekkert breyst í gegnum árin, bara orðið eldri.
Hér kemur Grýla
ofan af fjöllum
hún hefur á sér
fimmtán hala.
Jólakötturinn. | |
Jólakötturinn var hættulegur, mjög stór , illur og ljótur . Hann var á ferðinni um jólaleytið. Hann tók krakka sem höguðu sér illa og líka þau sem fengu engin ný föt fyrir jólin.
Þau sem höguðu sér vel og fengu ný föt fyrir jólin þurftu ekkert að óttast.
Núna er sagt að jólakötturinn sé dauður eða að minnsta kosti horfinn og komi sennilega ekki aftur, því það eru fá börn sem haga sér illa í dag, eða hvað??
|
Hér kemur jólakötturinn læðist inn um gluggann trítlar inn í ísskápinn og fær sér fullt af safa. |
Aumingja greyið kötturinn hann er kominn með flensu, kannski er hægt að hjálpa honum með bolla af heitum safa. |