Þrettándinn | |
6.janúar er síðasti jóladagurinn. Hann er yfirleitt kallaður "Þrettándinn". Þá safnast allir bæjarbúar saman fyrir neðan fjall sem heitir Há.
Uppi á fjallinu eru jólasveinarnir þrettán samankomnir og kveikja þar á kyndlum. Það er líka skotið upp alls konar rakettum og blysum. Svo ganga allir jólasveinarnir í röð niður af fjallinu og Grýla, Leppalúði og allskonar púkar og tröll slást í hópinn. Öll hersingin fer svo í röð uppá íþróttavöllinn og bæjarbúar elta.
Á íþróttavellinum er kveikt í stórri brennu og nú koma alls konar álfar og dansa í kringum eldinn. Á meðan álfarnir dansa, ganga jólasveinarnir og allar skrýtnu verurnar um svæðið og heilsa fólkinu og stríða börnunum. Margir yngstu krakkarnir eru mjög hræddir því þau halda að þetta séu alvöru verur og jólasveinar.
Þegar skemmtunin er að verða búin er stórkostleg flugeldasýning í brekkunni fyrir ofan íþróttavöllinn.
Að lokum halda allir heim og margar fjölskyldur hafa smá jólaboð, það síðasta áður en jólin eru alveg búin.